Viðburðir þann

Hulda Rós og Rökkurbandið
22.04.2009, kl.22:00 Tónleikar

Hljómsveitin Hulda Rós og Rökkurbandið

með opna æfingu

Hljómsveitin Hulda Rós og Rökkurbandið heldur opna æfingu á Kaffihorninu í kvöld í tilefni af síðasta vetrardegi. Þau vilja bjóða Hornfirðingum upp á lifandi tónlist og enda með þeim annars skemmtilegan og viðburðamikinn vetur í starfi hljómsveitarinnar. Á dagskránni eru bæði ný lög og eldri. Meðlimir hljómsveitarinnar eru Bjartmar Ágústsson á kontrabassa og bassa, Eymundur Ingi Ragnarsson á trommur, Heiðar Sigurðsson á Hammond og píanó, Sigurður Guðnason á gítar og Hulda Rós Sigurðardóttir syngur. Hljómsveitin byrjar að spila upp úr 10 og er frítt inn.

Umsjónaraðili

Kaffi Hornið
Hafnarbraut 42
780 Hornafirði
780  Höfn

ingo@eldhorn.is
 

 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica