Viðburðir þann

Íslenski fáninn
17.06.2009, kl.13:30 Skemmtanir

17. júní hátíðahöld í Nesjum

Hefjast við heitu pottana í Hoffelli

Hátíðarhöld í Nesjum verða með örlítið breyttu sniði þetta árið.
Við ætlum að hittast við heitu pottana í Hoffelli klukkan 13:30 og fara þaðan í ferð á sirkusvagninum sívinsæla : )
Stoppað verður á leiðinni og fólki hleypt út til göngu en þeir sem ekki treysta sér til eru velkomnir með vagninum á leiðarenda.
Þar verða síðan grillaðar pylsur, farið verður í leiki og sitthvað skemmtilegt gert sér til dundurs
Að þessum hefðbundnu dagskráliðum loknum, sem við áætlum að taki um eina og hálfa til tvær klukkustundir mun síðan víkingahljómsveitin Krauka spila fyrir alla þá sem heyra vilja.
Meðlimir hljómsveitarinnar spila af fingrum fram á hljóðfæri sem eru smíðuð eftir hljóðfærum frá víkingatímanum í bland við nútímalegri hljóðfæri.

Allir velkomnir í þjóðhátíðarskapi !!

U.M.F Máni

Umsjónaraðili

Ungmennafélagið Máni
Seljavellir
781  Höfn

 

 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica