Viðburðir þann

Skógræktarfélag Íslands
28.08.2009 - 30.08.2009, kl.9:30 Fundur

Aðalfundur Skógræktarfélags Íslands

Aðalfundur Skógræktarfélags Ísland verður haldinn á Höfn 28.-29. ágúst nk. í Nýheimum

Dagskrá: ( pdf)

Föstudagur 28. ágúst
9:30 Afhending fundargagna og kjörbréfa.
10:00 Fundarsetning og ávörp.
Magnús Gunnarsson, formaður Skógræktarfélags Íslands
Elín S. Harðardóttir , formaður Skógræktarfélags A-Skaftfellinga
Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri Hornafjarðar
Þröstur Eysteinsson, Skógrækt ríkisins
10:45 Skýrsla stjórnar Skógræktarfélags Íslands.
Magnús Gunnarsson og Brynjólfur Jónsson
Reikningar Skógræktarfélags Íslands. Brynjólfur Jónsson
Skýrsla Landgræðslusjóðs. Guðbrandur Brynjúlfsson
Fyrirspurnir um skýrslur stjórna.
11:45 Skipað í nefndir. Tillögur lagðar fram og kynntar.
12:15 Hádegisverður.
14:00 Vettvangsferð frá Nýheimum.
Ekið suður á Mýrar að Eskey, gengið upp á Eskey og þaðan rölt yfir í Hellisholt.
16:30 Ekið frá Hellisholti í Haukafell.
Brúarvígsla, gönguferð og gleði í Haukafelli. 21:00 Komið til Hafnar.

Laugardagur 29. ágúst
9:30 Fræðsluerindi Ari Þorsteinsson, verkefnisstjóri Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands Virkjum sköpunarkraftinn sem í okkur býr
Þóra Ellen Þórhallsdóttir prófessor Landnám og útbreiðsla birkis á Skeiðarársandi
Helgi Björnsson jarðeðlisfræðingur Hlýnun jarðar, hopun jökla
Agnes Brá Birgisdóttir, þjóðgarðsvörður í Vatnajökulsþjóðgarði erindi ekki ákveðið enn
Þröstur Eysteinsson, sviðsstjóri þjóðskóga, Skógrækt ríkisins Framtíðarsýn í íslenskri skógrækt
Fyrirspurnir og umræður.
11:30 Hádegisverður.
13:00 Nefndarstörf í Nýheimum.
15:30 Skoðunarferð um skóga í nágrenni Hafnar. Hrossabithagi, Hafnarskógur og Einarslundur, þar sem minningarsteinn um Einar Hálfdánarson verður vígður. 20:00 Hátíðarkvöldverður í Mánagarði. Rúta frá Nýheimum kl. 19:30. Fordrykkur í boði umhverfisráðherra. Hátíðardagskrá í boði Skógræktarfélags A-Skaftfellinga. Ávarp umhverfisráðherra og heiðranir. Rúta gengur á hálftíma fresti frá Mánagarði eftir kl 24:00 til gististaða.

Sunnudagur 30. ágúst
9:30 Afgreiðsla reikninga.
9:45 Afgreiðsla tillagna.
10:45 Almennar umræður.
11:30 Kosning stjórnar.
12:15 Fundarlok.
15.00 Fyrir þá sem hafa áhuga. Skoðuð útbreiðsla stafafuru í Steinadal í Suðursveit og skoðað hið fræga Steinadalsbirki. Ferðabæn og blessun að hætti sr. Einars á Kálfafellsstað í lundinum í Steinadal. (Þetta er alveg auka, þeir sem eru á jeppum fara á eigin bílum, aðrir kaupa sér far með jeppamönnum)

 

 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica