Viðburðir þann

Þjónustumiðstöðin í Skaftafelli
29.11.2009, kl.14:00 Skemmtanir

Líf og störf í Öræfum

Ferðalag til fortíðar í máli og myndum

Í Skaftafellsstofu sunnudaginn 29. nóvember kl. 14:00

Dagskrá: Grunnskólabörn úr Öræfum syngja vísur eftir Jón Thoroddsen.
Kynning Svavars Sigurjónssonar á söfnun mynda vegna verkefnisins. Myndasýning á skjá: Daglegt líf um miðja síðustu öld
Sýnishorn mynda úr söfnuninni látin rúlla á skjánum Menningarmiðstöð Hornafjarðar lánaði ljósmyndir úr sýslunni frá mismunandi tímum og munu þær verða til sýnis í gestastofunni fram eftir vetri.
Kaffi, kakó og piparkökur

Allir velkomnir

Á laugardagskvöld kl: 20:00 verður Svavar með sýningu á gömlum og nýjum myndum úr Öræfum í Hofgarði .

Verkefnið “Líf og störf í Öræfum” fékk styrk frá Atvinnu- og rannsóknasjóði Sveitarfélagsins Hornafjarðar. Það var samstarfsverkefni Skaftafellsstofu, Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar, Svavars M. Sigurjónssonar og Hrafnhildar Hannesdóttur. Verkefnið fólst í söfnun og skráningu gamalla mynda úr Öræfum og hluti verkefnisins var að nýta þennan efnivið til fræðslu í Skaftafellsstofu. Svavar M. Sigurjónsson á allan heiður af söfnun myndanna en hann hefur safnað ógrynni af myndum úr Öræfum og víðar frá fyrri hluta síðustu aldar.

Umsjónaraðili

Vatnajökulsþjóðgarður

 

 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica